Frí í dag!
en er samt svoldið glatað þvi að það er ausandi rigning. Spurnign er núna sú hvor það verði bara ekkert almennilegt sumar hérna eins og var víst líka raunin í fyrra.
En maður er náttúrulega ekkert nema bjartsýnin og þykir þetta nú bara ekki svo slæmt miðað við 8 stig á Djúpavogi samkvæmt mömmu eru þau ennþá að bíða. Þannig að þá er þetta nú betra.
En í dag er frídagur. ég spurði húsbóndan í morgun hverslags dagur væri í dag og hann sagði eitthvað á þessa leið.. svo ég kvóti nú beint 'jesus upplösning' eða eitthvað í þessa átt.. kannski man ég þetta ekki alveg og mín náttúrulega fljót að snara þessu á enskuna og spyr hvort að það sé að jesús hafir stigið til himna, já svaraði húsbóndinn ekkert að fylgjast með. Nú þegar ég skrifa þetta þá finnst mér nú skrýtið að jesús í þýskalandi hafi verið svona lengi á leiðinni til himna. Getur það verið! Er öruglega löngu komin þessi íslenski, en fór hann ekki afstað til himna á 3ja degi. Veit ekki hvort að gyðingarnir hérna hafi eitthvað verið að setja strik í reikninginn en allavega þá er hann á leiðinni og við því í fríi.
Svo ég fari nú 2 daga aftur í tímann, sem ætti að vera deginum áður en jesús lagði afstað til himna ef það er á 3ja degi eins og biblíunni. Allaveg þá var ég svooo lasin á þriðjudagiinn að ég hreinlega vissi ekki hvað var að gerast. Fór í rúmið á Manudag soldið bara þreytt fannst mér og leið pínu skringilega. Á þriðjudag vaknaði ég aftur á móti með svima, ógleði og hausverk. Mér datt strax í hug að ég hefði fengið matareitrun af pizzunni sem ég át sem var quatro stagioni og hafði túnfisk og lax ásamt skinku og sveppum. Ég snerti hinsvegar lítið við þeim helming sem hafði fiskinnn svo allaveg þá lá ég alveg bakk í rúminu til 8 um kvöldið. Gat ekki einu sinni borðað, bara allt hringsnérist hreinlega. En svo hresstist ég nú um kvöldið. Fékk kjúklingasúpu að borða og þá fór þetta allt í rétta átt.
Svo í gær fór ég í skólan og eftir það fórum við á safn EL DE húsið heitir það uppá íslenskuna. Mér fannst þetta svaka fróðlegt. Þetta er semsagt höfuðstöðvar Gestapó í Köln og þarna voru skrifstofur og einnig fangelsi í kjallaranum sem var ýmist notað til pyntinga á föngum áður en þeir voru sendir til annarra fangelsa eða í útrýmingarbúðirnar, einnig voru framkvæmdar aftökur í garðinum bak við húsið þar sem fólk var tekið af lífi á gálganum. Læt fylgja með linki fyrir þá sem vilja vita eða skoða meira http://www.museenkoeln.de/ns-dok/
annað sem var áhugaverð við þessa heimsókn er að það voru 2 gamlar kerlingar sem unnur þarna í afgreiðslunni og á slaginu kl. 4 þá var öllum hent út. Já safninu var lokað. Skipti engu þótt að þú hefði borgað fullt gjald og værir ekki búina að sjá allt.. bara út með ykkur. Mér fannst þetta skrýtið en samt líka soldið fyndið. Aldei lent í svona áður.
Svo var haldið heim og græjað sig fyrir stelpukvöld sem var alveg stórgott verð ég að segja. Drukkið, kjaftað og svo látið sig hafa það út í hellidembuna og labbað á diskótekið og tjúttað þar í langan tíma eða alveg þangað til að plötusnúðurinn var komin í ruglið með tónlistina og bara bara að spila eitthvað don, dong dong.. já ég missti alveg út úr þessu electróniska tónlistartímabili.. næ ekki einu sinni að halda takti. En við óðum aftur út í rigninguna og skelltum okkur á annað diskó í grendinni. Mættum hundblautar í brjálað stuð þar og ég dansaði til 5 um morgunin þá var ég alveg búin á því og fór heim. Skildi stelpurna eftir í góðum fíling á dansgólfinu. Veit ekki hvort þær hafa skilað sér heim eða eru annþá að dansa kannski bara?
En eins og ég inntist á áður þá er margt skrýtið hérna. Ég skildi tildæmis aldrei afhverju allir bíða á rauðu ljósi á gangbraut þegar engin er umferðin. Get svarið það. Þau bara standa þarna og bíða eftir að græni kallinn komi og þá fara þau að stað. Um daginn fór ég yfir eins og alltaf, sé ekki afhverju ég er að bíða?? og þá var einhver kelling að tauta á eftir mér. Sorry en kannski er ég svona adrenalín fíkill sem stekk yfir á rauðu göngu ljósi uppá thrillið að gera. En svo þegar ég fór að tala um þetta við vin mínn þá sagði hann að löggann sektaði fólk hiklaust ef það færi yfir, 20 evrur takk fyrir!! Ég verð því að stoppa á rauðu ljósi og horfa í kringum mig og athuga hvort það er lögga í nágreninu, ef ekki þá get ég labbað yfir.. já á rauðu.. og hana nú!
En er farn að duna mér það sem eftir lifi dags.. knús á ykkur!
I RAN the World!!
fimmtudagur, júní 11, 2009
mánudagur, júní 08, 2009
Mánudagur til mæðu.....
úff hvað ég er móð. Enda skellti ég mér í rækilegan göngutúr og þó að það hafi nú ekki verið það erfiðasta heldur eru það stigarnir sem taka við upp í þessa íbúð.. úff þetta venst seint.
Borðaði svo obboslega mikið í gær þar sem við buðum nokkrum vinum í humarveislu að hætti hússins. þessir fáu gestir (4 með okkur 2) slátruðu 2 rauðvín, 1 hvítvín og 8 bjórum, ásamt humri, salat, brauði og eftirrétt.. jeddúddan mía. Var ennþá södd í dag kl. 2 þegar við bekkurinn ásamt fleirum fórum út að borða í tilefni þess að ein stelpan átti afmæli. Þar náði ég að gúffa í mig pizzu líka. Amen!
Annars var þessi helgi sem leið óttarleg letihelgi. Það var leiðindarveður alla helgina ausandi rigning og bara napurt eins og ég minntist á í síðasta pósti. Ég eyddi laugardagskvöldinu hjá vinkonu í smá stelpuboði voða gaman. Sunnudagurinn var aftur á móti notaður í skipulagningu, þvott og lærdóm hjá minni.
Svo er aftur stutt vinnuvika hérna í þjóðverjalandi. En þegar ég spurði í skólanum í dag hvort væri frí hjá okkur á fimmtudag þá var svarið NEI! Útskýringin var heldur skringileg. Hin konan sem kennir okkur miðvikudaga til föstudaga sagði kennaranum okkar sem við vorum með í dag að hún gæti það einfaldlega ekki. Hún væri búin að vera svo stressuð í síðustu viku og við gerðum ekki heimavinnuna okkar og þess vegna yrðum við að koma á fimmtudagin??? Ég er ekki að skylja hvað konan er stressuð eftir 1 viku með okkur í kennslu og við erum byrjendur í þýsku það er ekki eins og við séum að taka BA próf í næstu viku. En ég veit ekki hvað málið er með hana, hún leyt nú ekkert út fyrir að vera stressuð í síðustu viku en mér finnst eitthvað skrýtið við hana.. allaveg er ég ekki alveg að fíla hana eða ná henni. Kennarinn okakr í dag er aftur á móti frábær og vildi ég að við hefðum hana meira. En þetta er svosum ekkert til að vera velta sér yfir skal ég ykkur segja.
Annars las ég yfir bloggið mitt sem ég póstaði á sunnudaginn og ó mæ god. Er ég búin að gleyma íslenskuni, er ég svona löt eða var ég svona utan við mig. Vá hvað voru margar villur hjá mér. Vona að þið hafi nú komist yfir þetta hikstalaust.
Sendi ykkur bara knús og kossa

sunnudagur, júní 07, 2009
Ég drekk Beck´s.. hver hefði trúað því!
Er ekki ágætt að blogg núna eftir þessa 10 daga sem hafa liði, já og ekki áfallalaust. En það kemur náttúrulega engum á óvart sem þekkja mig.
Þetta byrjaði nú allt á því að ég misst af fluginu mín hingað. Já alltaf gaman þegar ég er að ferðast. Það kostaði heilan helling að kaupa annan miða daginn eftir og þá bara til Frankfurt og ekki lengra og því var það náttúrulega að koma sér þaðan og til Kölnar. Já lestin kostaði sitt en þetta hafðist allt á endanum. Alveg frábært að þegar ég finn eitthvað ódýrt flug og er alveg að rifna úr monti þá gerist eitthvað svona endalaust vesenis dót.
En ég komst á leiðarenda með ópalinn sem allir höfðu beðið eftir. Byrjaði daginn eftir á að skrá mig í skólann og safna öllum pappírum og svoleiðis til að geta skráð mig hérna í borginni. Þetta er sko skylda sem þjóðverjar setja, að innan 7 daga frá komu þá þarftu að skrá að skrá aðsetur þínar. Ég var með langan lista f pappírum sem ég þurfti ýmista að sækja um á íslandi eða hérna út. Jah.. þegar ég svo kom á skráningarskrifstofuna eldsnemma um morguninn þá var ég númer 191 og næsta númer var 32.. júhú!
En þetta gekk nú hratt fyrir sig og ástæða sennilega sú að þessir pappírar sem ég var búin að safna að mér voru einskins nýtir. Jú þær þurftu nú bara passann minn ogég mátti bara eiga afganginn.
Svo var bara einbeitt sér að því að halda uppá ammælið mitt með pompi og prakt eins og venjulega. Fékk voða fínan bröns og pakka um morguninn og svo ammælismatur á voða fínum japanskum stað. Alveg alsæl.. Svo var vel tekið á því á föstudeginum með vinum.
Það var svo gott veður hérna fyrstu dagana eftir að ég kom, algjör sæla. Sambýlismaðurinn tók sér frí í vinnuni og nutum við þess bara að liggja í garðinum með bók eða kjafta við vini sem áttu leið hjá. Svo ekki sér minnst á grillið góða.. nammi namm.
Sunnudaginn fór ég á bretta sýningu hérna, hjólabrettasýningu og svo var haldið í svakalegt úti partý með brjálæðislega góðum dj-um sem voru bara að gera góða hluti. Staðuriinn sem partýið var á er svona einhversstkonar vinnustofa listamanns sem vinnur með járn og voru alskonar flottir skúlptúrar um allt þarna. Þá meina ég risa stórir. Minnti helst á Mad Max myndirnar svæðið sem þetta var á og annaðslagið spúaði dreki eld út úr sér.. bara kúl!
Við fórum þarna á staðinn á hjólunum okkar.. já alveg edrú. En það var nú önnur sagan þegar átti að fara aheim um morguninn. Sambýlismaðurinn var svo drukkinn og ég mátti bara passa mig að míga hreinlega ekki í brækurnar af hlátri. Eina stundina var hann fyrir aftan mig og svo 10 sekúndum seinna leyt ég aftur og fann hann út í runna og eitt skiptið munaði engu að hann flygi á auglýsingarskylti. Svakalega fyndið.. en kannski svona 'You had to be there' fyndið?
Síðan byrjaði skólinn minn með pompi og prakt og er ég bara ágælega ánægð með hann, mætti vera aðeins erfiðari verð ég að segja. En ég verð bara að vera duglega að gera eitthvað sjálf til að læra. Skellti mér með vini mínum í golf um dagin, eða ekki golf heldur bara að skjóta kúlunum. Mér fannst það ógeðslega gaman. Daginn eftir skelltum við okkur í sund og þakka ég nú bara fyrir að hann kom með annars hefði ég bara verið að spíg spora um svæðið alsber með hanklæðið í annarri og sundbolinn í hinni. Í þýskalandi er það nefnilega þannig að allir klæða sig úr fötunum í svona litlum mátunarklefa og setja þar á sig sundfötin. Labba svo með handklæðið í kvenn eða karlasturtur og halda svo áfram á handklæðinu út að sundlauginni.. já súper flókið!! Maður geymir svo handklæðið sitt og syndir bara eins og maður vill. Mér þótti það svoldið skrýtið að það var engin sápa í sturtuklefunum, þannig að ég komst að þeirri niðurstöðu að allir væru bara soldi subbugir að fara ofaní laugina. En þetta var nú mun skemmtilegri reynsla heldur en nuddið sem ég fór í hérna um forðum daga, svo var líka svaka rennibraut I lauginni og auðvita þurfti maður að prófa hanna.. rosa gaman.
En manni finnst nú margt skrýtið svona fyrstu dagana hérna í Þjóðverjalandi. Ekkert er opið á sunnudögum. Bara allt lokað nema nokkrar sjoppur sem hægt er að kaupa bjór og blöð og svonleiðis,
Svo er hérna hinumeginn við götuna búð sem selur bara allskona hreinisvörur og áhöld. Ég náttúrulega varð að fara inn og skoða góssið og kom út með þessa fínu moppu. Ég hugsaði með mér að nú yriði sko skúringarkonan okkar ánægð, en nei! Hún hreyfði ekki einu sinni við henni. Jahérna!
En svo er nú eitt og annað sem er snilld hérna. Sem dæmi þá var ég komin með bankareikning hérna án þess að hafa nokkurntímann stigið fæti inn í banka í þessu landi. En fékk send skjöl í tölvupósti og skrifaði undir og fékk svona hraðbankakort. Svo 3 dögum eftir að ég kom þá beið mín debitkort og kreditkort í póstinum og alles. Jahérna.. góð þjónusta og mín ekki einu sinni með vinnu hérna heldur fátækur námsmaður. En ég var ánægð með þetta allt samana end búin að undirbúa mig undir mikla pappírsmenningu hérna.
Það er nú ekkert almennilegt blogg nema maður segji aðeins af veðrinu sem byrjaði vel en er bara búið að vera kalt síðustu daga. En þetta stefnir allt í góðan hita í næstu viku og þá kvartar maður ekki.
Ætla svo að vera duglegri að blogga næstu daga.. lofa!

föstudagur, apríl 17, 2009
Undur og Stórmerki
Já ég var vöknuð svo snemma í morgun og hundleiddist. Enginn búin að blogga nýtt síðan í gærkvöldi og búin að horfa á nýjasta þáttinn úr 30 Rocks allt fyrir klukkan 8 um morgunin. Já og borða morgunmat. Alveg glatað
Svo mér datt í hug að kannski væri að pínu ósanngjarnt að ég bloggaði aldrei en krefst þess að aðrir gera það allavega einu sinni á dag. Alltaf sama frekjan í manni.
En anyhow! Hvað hefur gerst síðan síðast. Jú ég fór til íslands um jólin sem var æðislegt eins og alltaf. Eyddi áramótunum í þýskalandi grét afþví ég saknaði allra heima á klakanum, þrátt fyrir að vera stödd í dúndur góðu partýi og við með geggjaðan rakettupakka. En já svona er maður nú heimakær stundum. Lifði þetta samt af allt saman. Voða gaman.
Svo var haldið aftur til London til að vinna. Þar er alltaf sama geðveikin og fyrir mánuði síðan og nokkrum dögum meir þá hætti ég. Já ég bara sagði upp. Sem er sennilega vottun fyrir nettri geðveikri á þessum verstu tímum að segja upp vinnu. En ég bara gat ekki meir. Þetta var sko lagt frá því að vera skemmtilegur vinnustaður og það komu oft uppp augnablik sem ég vildi frekar vera að pakka fiski heima á Djúpó í stað þess að mæta þarna á skrifstofuna. Erfitt að útskýra þetta nema að verða vitni af því andlega ofbeldi sem gengur á þarna.
Ég er semsagt frjáls eins og fuglinn þessa dagana og atvinnulaus. Glæsilegt! Eða þannig. En ef maður tekur ekki sjens þá bara hvað?
Er á leiðinni heim á klakann i næstu viku. í eymdina þar. Gerist ekki betra. Svo verður bara spennandi að sjá hvað gerist í framhaldinu. Fyrst er að koma öllu draslinu heim með Icelandexpress.. oh boy. Er með ógeðslega mikið dót. Þanig að ef þú veist um einhvern sem er að fara til íslands með engann farangur og langar að hjálpa mér svo ég þurfi ekki að greiða milljón kall í yfirvigt. Þá endilega hafa samband.
En allavega bara smá uppdeit til að láta vita að ég er jú ennþá á lífi..
knús og kossar í bili...